fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og hvet hann áfram í að vinna að þessu. Næsta sem ég vildi ræða er áform um stofnun miðhálendisþjóðgarðs til þess að stækka friðlýsingarsvæðin og hvort hæstv. ráðherra sé ekki sammála mér um mikilvægi þess að byggja upp þau friðlýstu svæði og þau svæði sem við höfum á einhvern hátt umsjón með fyrst, að leggja mikla áherslu á það sem fyrir er, það sem er komið í ferli, að það sé byggt upp.
Þetta snýst alltaf um gott samkomulag við sveitarfélögin. Ég ætla að fá að nefna hér þrjú svæði sem sveitarfélögin eru frumkvöðlar í því að vernda. Það er Katla Geopark, Reykjanes Geopark og svo að Jökulsárlón sé komið inn í Vatnajökulsþjóðgarð. Þetta eru allt svæði þar sem sveitarfélögin eru frumkvöðlarnir og það er mjög dýrmætt fyrir okkur að sveitarfélögin kalli eftir og taki þátt í þessari verndun með okkur og uppbyggingu á þessum svæðum í sátt við náttúruna. Þetta eru allt svæði sem þarfnast mikillar uppbyggingar, eru enn þá í ákveðnum rekstrarvanda og áfram þarf að gera skipulag og skoða hvernig vernda á þessi svæði og hvernig við tökum vel á móti gestum þannig að sé sómi að.
Ég tel mjög mikilvægt núna í vinnunni við stofnun miðhálendisþjóðgarðs að þessi svæði séu ræktuð vel, það sé tryggt að þetta gangi vel upp og við sýnum sveitarfélögunum þá virðingu að við stöndum með þeim í þeirri uppbyggingu sem þau kalla eftir.