148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[14:36]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirspurnina. Ég get alveg sagt að þessi þverpólitíski stuðningur sem hv. þingmaður lýsti og sagði að hefði verið á fundinum rétt fyrir kosningar — ég veit ekki betur en hann sé enn við lýði. Við erum að ganga frá því, vonandi bara í næstu viku, að skipa nefndina, þessa þverpólitísku nefnd. Þá mun hún taka til starfa. Hennar hlutverk verður reyndar víðfeðmt, en það verður meðal annars að móta tillögur að því hver afmörkun þjóðgarðsins á að vera, hverjar eigi að vera helstu aðkomuleiðirnar inn í hann, hvaða tækifæri það skapar, gerð lagafrumvarps, skipting í verndarsvæði og þar fram eftir götunum. Þannig að áður en það liggur endanlega fyrir er erfitt að segja hvort krónutalan sé hárnákvæm upp á það sem á að fara í þetta, enda er eitt hlutverk nefndarinnar að reyna að meta hversu mikil fjárþörfin verður.

Þetta er það sem sett er fram hérna. Þetta eru fyrstu skrefin, þannig að við getum alla vega farið af stað. Ég held að það sé mjög ánægjulegt að sjá það fjármagn þegar komið inn þannig að hægt sé að vinna að framgangi verkefnisins sem er, eins og hv. þingmaður lýsti réttilega, eitt af stóru málunum sem ríkisstjórnin ætlar að ráðast í á þessu kjörtímabili og snýr að náttúruvernd.