148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[15:06]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson):

Hæstv. forseti. Það er til svara, varðandi matið á ástandi ferðamannastaðanna, að ástæðan fyrir því að sagt er í áætluninni að þetta sé ekki komið er sú að verið er að vinna í matinu. Auðvitað vitum við að ástandið er víða mjög slæmt. Þess vegna erum við líka með í gangi áætlun, landsáætlun, um uppbyggingu innviða á náttúruverndarsvæðum og þar sem menningarminjar eru. Fjármagni er þegar búið að verja á árinu í ár og reyndar til næstu tveggja ára akkúrat í það sem byggist á forgangsröðun. En þetta mat sem byggir, ef ég man þetta rétt, á fyrirmynd frá Noregi er til þess að geta með mjög heildstæðum og samræmdum hætti skoðað ástandið alls staðar á þessum svæðum. Það er þá verið að miða við að í lok áætlunarinnar höfum við mat á þessu fyrir ansi mörg svæði, hvort þetta voru 90 eða 95%, ég man ekki hvernig það er nákvæmlega.

Varðandi gjaldtöku þá er til skoðunar á vegum ferðamálaráðherra hvernig þessu sé best fyrir komið. Þar hefur verið bent á að komugjöld eða brottfarargjald, hvernig sem við lítum á þetta, sé það sem verið er að skoða. Það eru auðvitað í gangi ákveðin sérgjöld. Það er eitthvað sem heyrir að hluta til undir ráðuneytið hjá mér, sem er þá það sem er á friðlýstum svæðum. Til dæmis eru gjöld tekin í Þingvallaþjóðgarði og það er byrjað líka í Vatnajökulsþjóðgarði eins og hv. þingmanni er sjálfsagt kunnug um. Þannig að við erum að reyna að skoða þetta heildstætt yfir. En það hefur svo sem ekki verið tekin nein umræða um það að falla frá þessum sérgjöldum enda eru þetta í raun gjöld (Forseti hringir.) sem eru fyrir þjónustu sem verið er að veita á svæðinu, þannig að þau eru kannski svolítið annars eðlis. Alla vega lít ég svo á.