fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Það er gott að blessað að við fáum þessa aðgerðaáætlun en þangað til verðum við að samþykkja fjármálaáætlun án þess að vita í rauninni í hvað peningurinn á að fara. Það er miður. Þannig að mér þætti vænt um að sjá aðeins nánari greiningu, þó að hún sé ónákvæm með stórum vikmörkum, um kostnað á hinum og þessum verkefnum í fjármálaáætluninni sjálfri sem er ekki hér, en hæstv. ráðherra kemur með hana í ræðustól, sem er þá til bóta.
Mikið hefur verið talað um skógrækt og mig langar að bæta inn í þá umræðu umhverfismati vegna skógræktar. Eftir því sem ég best veit þarf ekki umhverfismat vegna skógræktar fyrr en stærð svæðis sem fer undir skógrækt fer yfir ákveðið hámark, og það er passað að það fari aldrei umfram það hámark. Það er viðmið. Er þá viðmiðið í rauninni of hátt fyrst hægt er að koma allri skógrækt fyrir á landinu án þess að fara nokkurn tímann í umhverfismat?