148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[15:36]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Ég vil beina nokkrum spurningum til hæstv. umhverfisráðherra. Það er algjört stefnuleysi af hálfu ríkisstjórnarinnar til lengri tíma litið, hún hummar fram af sér ákvörðunartöku þegar kemur að gjaldtöku á ferðaþjónustuna og að samræma ferðaþjónustuna við aðrar atvinnugreinar. Á síðasta þingi lágu fyrir tillögur, m.a. Viðreisnar, í þá veru. Gott og vel, það er verið að fara aðrar leiðir en það dvelur bara orminn langa. Það eru engar ákvarðanir af hálfu ríkisstjórnarinnar.

Ég verð að segja eins og er að af hálfu ferðamálaráðherra er nokkuð ljóst að engar ákvarðanir verða teknar fyrr en hugsanlega 2019 eða 2020. Á hverjum bitnar þetta? Á umhverfinu, á náttúrunni. Þeim áhyggjum hlýtur hæstv. umhverfisráðherra að deila með mér. Meðan þetta aðgerðaleysi og úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar er varðandi gjaldtöku í ferðaþjónustu hlýt ég að spyrja: Hefur hæstv. umhverfisráðherra hugsað sér að beita sér fyrir gjaldtöku í þjóðgörðunum eða inn í þjóðgarðana til að byggja þá upp? Ég sé þess hvergi stað né neina sýn í áætluninni. Það fjármagn sem er í fjármálaáætluninni mun augljóslega ekki duga til að byggja upp þá þjóðgarða sem fyrir eru, hvað þá að koma upp með metnaðarfullum hætti hugsanlegum miðhálendisþjóðgarði.

Fyrsta spurningin er: Er hugsanleg gjaldtaka inn í þjóðgarðana?

Það eru miklir fjármunir í búvörusamningnum sem eiga að byggja upp landbúnað í landinu og ég held að hluti af tækifærum landbúnaðar sé að horfa í auknum mæli til þess hvernig við getum líka byggt upp náttúruvernd og umhverfisvernd. Því spyr ég í öðru lagi hvort hann muni sem umhverfisráðherra beita sér núna við endurskoðun á búvörusamningnum fyrir því að umhverfisverndin, jarðræktin, verði tekin markvissar inn í búvörusamninginn en nú er.