148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[16:03]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Eitt í ræðu hans langaði mig að spyrja út í. Nú bý ég uppi á Akranesi, keyri Hvalfjarðargöngin fram og til baka flesta daga. Hann nefndi þau sérstaklega. Ég skynja ekki þessa þörf á tvöföldun ganganna. Til að setja í samhengi kostnaðinn við tvöföldun ganganna, sem er u.þ.b. 15 milljarðar, þá væri hægt fyrir 15 milljarða, gróflega, að breikka veginn um Kjalarnes, breikka veginn áfram eftir að í gegnum göng er komið, gegnum Borgarnes, fram hjá Bifröst og langleiðina upp á Holtavörðuheiði. Bara til að setja í samhengi hvað þetta er stór aðgerð.

Telur hæstv. ráðherra að það sé nauðsynlegt að horfa til þess að ráðast í breikkun eða tvöföldun Hvalfjarðarganga á næstu árum? Mér heyrðist á ræðu hans að hann teldi það ekki umflúið mikið lengur. Ég hef efasemdir um það sem töluvert mikill notandi þessara ganga, ég er tíður gestur þarna. En ég held að fjármununum væri betur varið annars staðar, þörfin sé brýnni víða annars staðar í vegakerfinu. Það væri áhugavert að heyra sjónarmið hæstv. ráðherra varðandi Hvalfjarðargöng, hvort þetta sé jafn brýnt og það gæfi til kynna að fara í vegtollafjármögnun á slíkri framkvæmd.