fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Endurreisn íslenska menntakerfisins er hafin. Fimm ára fjármálaáætlun ber þess merki. Ljóst er að fjárfest verður í menntun og menningu þjóðarinnar á næstu árum. Ég geri hér grein fyrir megináherslum í stefnuáætluninni til fimm ára sem er á ábyrgð mennta- og menningarmálaráðuneytis.
Undanfarin ár hafa framlög til háskólastigsins verið aukin verulega. Á tímabilinu 2019–2023 stefnum við að því að auka framlög til stigsins um 4,8% eða sem nemur tæpum 2,2 milljörðum. Því má gera ráð fyrir að framlögin verði komin í rúma 47 milljarða árið 2027 samanborið við 42 milljarða 2017. Þetta er aukning upp á tæp 12% og munar þar miklu um þá hækkun sem háskólastigið fékk í ár.
Til viðbótar má nefna að framlögin jukust um 15,2% að nafnvirði á milli áranna 2016 og 2018 en vísbendingar eru um að sú aukning sé umfram það sem hefur verið að gerast í öðrum Evrópuríkjum. Markmiðið er að framlög til háskólastigsins nái meðaltali OECD-ríkjanna á hvern nemanda árið 2020. Markmiðum stjórnvalda fyrir þetta málefnasvið má skipta í þrennt. Í fyrsta lagi verður að auka gæði náms og námsumhverfis til að styrkja stöðu íslenskra háskólanema í alþjóðlegum samanburði. Í öðru lagi að styrkja rannsóknastarf í háskólum og umgjörð þess þar sem nauðsynlegt er að efla útflutning í tengslum við hugvit og mannauð. Í þriðja lagi viljum við búa til þekkingarbrú á milli háskólastigsins og atvinnulífsins til að fjárfesting í menntakerfinu skili sér til samfélagsins í auknum mæli. Það er nefnilega þannig að hver ein króna sem fjárfest er með inn á háskólastigið skilar sér áttfalt inn í hagkerfið. Fjárfesting í háskólum er lykilþáttur í að auka samkeppnishæfni Íslands inn í framtíðina og takast á við þær samfélagslegu áskoranir sem örar tæknibreytingar hafa á heiminn. Þar ætlum við að vera í fararbroddi.
Á síðustu árum hefur framlag til framhaldsskólastigsins einnig hækkað umtalsvert eða um 12,6% á milli áranna 2016 og 2018. Munar þar miklu um aukninguna á þessu ári. Hækkunin gerir framhaldsskólum m.a. kleift að bæta námsframboð, efla stoðþjónustu sína og endurnýja búnað og kennslutæki. Fjárheimildir framhaldsskólastigsins munu halda áfram að hækka miðað við fjármálaáætlun en gert er ráð fyrir aukningu um 700 milljónir eða 2,2%. Sé miðað við fyrri fjármálaáætlun er um að ræða hækkun upp á 4,5 prósentustig til málaflokksins. Framlög á hvern ársnema á framhaldsskólastigi hækkuðu um 6,5% að raunvirði á milli áranna 2017 og 2018. Ef gert er ráð fyrir að öll hækkun á málefnasviðinu fari í rekstur framhaldsskólanna hækka framlög á hvern nemanda um 8% á næsta ári. Þetta þýðir að fjárframlög á hvern nemanda árið 2020 verða að meðaltali rúmar 1,6 milljónir kr.
Virðulegi forseti. Framlög til nýsköpunar, rannsókna og þekkingargreina halda áfram að hækka á tímabilinu, eða um 8,9%. Við ætlum að auka samkeppnishæfni atvinnulífsins í síharðnandi alþjóðlegri samkeppni, m.a. með því að styðja við sköpun nýrra starfa í þekkingargreinum. Við ætlum að halda áfram að styðja við menningu, listir, íþrótta- og æskulýðsmál og fjölmiðlun í landinu. Í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um að bæta rekstrarumhverfi bókaútgáfu, skapandi greina og fjölmiðla. Virðisaukaskattur á bækur verður afnuminn í byrjun árs 2019 og breytingar á virðisaukaskatti á fjölmiðlaáskriftir eru komnar í opið samráð. Von er á fleiri aðgerðum sem miða að því að bæta rekstrarumhverfi fjölmiðla en gert er ráð fyrir á tekjuhliðinni um 800 milljónum er þetta varðar.
Þá er ég virkilega ánægð og stolt af því að máltækniáætlun verður fullfjármögnuð á tímabilinu og verður íslenskan því gerð gildandi í stafrænum heimi til framtíðar.
Virðulegi forseti. Megináherslan er lögð á að efla menntun og menningu í landinu með hagsmuni þjóðarinnar allrar að leiðarljósi. Hér er horft til framtíðar, þ.e. að menntun, menning og vísindi auki (Forseti hringir.) lífsgæði fólksins í landinu og verði til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag.