fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að samgleðjast okkur er varðar afnám virðisaukaskattsins á bækur. Það skiptir verulegu máli að við tökum þetta skref. Það hefur ekki verið tekið í mjög langan tíma eitthvert slíkt skref til að efla bókaútgáfu í landinu. Með því að taka þetta skref erum við svo sannarlega að efla þá starfsemi. Ég hlakka til að sjá hver árangurinn af því verður.
Er varðar háskólastigið hefur aukningin sem við höfum verið að setja á þessum árum, frá 2016–2018, upp á rúm 12% af nafnvirði, ja, 15% af nafnvirði, við höfum ekki séð svona mikla aukningu í mjög langan tíma. Grunnurinn að því að nálgast það OECD-markmið sem við ætlum okkur að gera er svo sannarlega til staðar.
Nú erum við líka búin að skipa vinnuhóp þar sem við ætlum að meta þessar rauntölur sem við erum að bera okkur saman við. Síðustu tölur sem við höfum frá Efnahags- og framfarastofnuninni eru frá 2014. Það er svolítið mikilvægt að við náum aðeins betri festu og skilningi á því hvar við stöndum raunverulega. Vegna þessa höfum við fjármála- og efnahagsráðherra sett á laggirnar vinnu til þess að meta það.
En það er alveg ljóst í mínum huga að ef við ætlum að vera samkeppnisfær og standa okkur vel í alþjóðlegri samkeppni verðum við að ná þessu markmiði. Ég mun leggja mig verulega fram til að berjast fyrir fjármunum þannig að svo megi vel vera.