fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Við höfum verið að eyrnamerkja sérstaka fjármuni í þágu iðn-, verk- og starfsnáms. Það að afnema efnisgjöldin til að mynda er stór liður í því. Það voru 300 milljónir á síðasta ári og 300 milljónir á þessu ári og þetta mun sér í lagi gagnast þeim sem eru í iðn-, verk- og starfsnámi.
Ég vil einnig nefna það að ég tel svo sannarlega koma til greina að huga að kynjadreifingu í þessum greinum og mér finnst það mjög góð ábending hjá hv. þingmanni.
Það er annað sem ég vil nefna. Það kemur í ljós þegar við gerum úttekt á grunnskólakerfinu okkar að við uppfyllum í rauninni ekki þau markmið sem við setjum okkur um valgreinar. Ég tel að fyrsta skrefið hvað þetta varðar sé að við náum markmiðum um valgreinar því að þær eru oft fyrsta kynning nema á því hvað er í boði. Ég vil vinna að því með sveitarstjórnarstiginu að byrja þar því að þar kynnast þau þessu. Það sem er líka að gerast er að valgreinar eru tiltölulega gott hlutfall hjá nemum frá 1. upp í 4. bekk og svo 4. bekk og upp í 7., svo hríðfalla þær á unglingastiginu. Ég tel að það sé ein af skýringunum hvers vegna það séu ekki jafn margir hér á landi sem fara í iðn-, verk- og starfsnám og til að mynda í samanburði við Noreg. Hér á landi eru 12% sem fara í þessar greinar en talan er mun, mun hærri í Noregi og öðrum Evrópuríkjum, hvort það sé í kringum 30% sem fara á svipaðan vettvang í Noregi.