148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[17:54]
Horfa

Páll Magnússon (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka ráðherra kærlega fyrir svörin. Hitt sem ég vildi koma inn á nefndi hún raunar í svari við annarri fyrirspurn rétt áðan. Það gladdi mig mikið þegar ég heyrði ráðherra lýsa þeirri stefnu sinni og vilja, oftar en einu sinni ef ég man rétt, líka hér í þingsal, að hún vildi gera tæknimenntun, iðnmenntun og hvers kyns starfsmenntun hærra undir höfði en nú er. Nú fór hún með sláandi tölur hér rétt áðan sem ég gerði mér bara ekki grein fyrir, að það væru einungis 12% ungs fólks á Íslandi sem legðu fyrir sig menntun af þessu tagi meðan hlutfallið væri miklu hærra annars staðar og allt upp í 30%.

Þetta held ég að sé lykilatriði. Að í stað þess að moka, eða beina, svo að við notum kurteislegra orðalag, eiginlega öllum í gegnum stúdentspróf og helst upp í háskóla og í gegnum hann í bóklegum greinum séum við að svara þeirri eftirspurn sem er á vinnumarkaði eftir annars konar menntun betur en við gerum í dag.

Því spyr ég ráðherrann: Hvar sjáum við þess stað í þeirri fjármálaáætlun sem við erum að ræða hérna, að hæstv. ráðherra ætli að gera eitthvað í þessu?