fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Ég þakka þessa fyrirspurn hv. þingmanns. Það sem skiptir miklu í þessu er að við séum að forgangsraða fjármunum í þessa veru eins og við höfum rætt. Í fyrsta lagi erum við búin að afnema efnisgjöldin á framhaldsskólastiginu. Í öðru lagi erum við að auka verulega fjárframlög til framhaldsskólastigsins sem þýðir að við getum forgangsraðað í þágu þessara VIST-greina, verk-, iðn-, starfsnáms- og tæknigreina. Við erum að gera það, m.a. með efnisgjöldunum, og líka með þeirri vinnu sem við erum að leggja til.
Ég tel líka mjög brýnt að það sé virkara samtal við atvinnulífið. Við erum líka að leggja í vinnu í svokallað færnismat, þ.e. færnisspá, að reyna að sjá fram í tímann. Auðvitað er alltaf mjög erfitt að sjá inn í framtíðina, hverjar verða þarfir atvinnulífsins. Hverjar eru þær í dag? Hverjar verða þær í framtíðinni? Það er alveg ljóst að við munum alltaf þurfa verulega á ákveðinni menntun að halda einmitt í þeim greinum sem við erum að nefna. Það eru algerir draumórar að halda að við getum ekki sinnt þessu. En við höfum verið að forgangsraða fjármunum í þessa veru eins og ég hef nefnt. Ég tel líka eins og ég nefndi áðan, varðandi grunnskólastigið og valgreinar, hvernig þeim hefur verið að fækka á unglingastiginu, að það sé alveg skýrt orsakasamhengi á milli þess og hvað íslenskir nemar á unglingastigi velja sér svo í framhaldinu.