fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Ég er sammála hv. þingmanni, það er mjög mikilvægt að ráðuneyti vinni saman varðandi þá sem eru í brotthvarfshættu eða hverfa af framhaldsskólastiginu af því að þetta tengist oft. Við sjáum mjög oft vísbendingar á grunnskólastiginu um það hverjir eru líklegastir til þess að lenda í brotthvarfinu. Við sjáum líka vísbendingar um það hverjir eru þá líklegir til þess að lenda inni á örorku. Þess vegna er svo mikilvægt að menntakerfið okkar sé fjölbreytt þannig að sem flestir einstaklingar geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Ég hef þá staðföstu trú að það hafi allir hæfileika í einhverju. Þess vegna finnst mér tómstundastarf skipta svo miklu máli.
Ég vildi nefna það líka þegar við erum að tala um börn af erlendum uppruna að ég tel að sveitarfélögin hafi gert gríðarlega gott mót með frístundakortunum, með því að veita öllum börnum rétt á aðgengi að frístundum, hvort sem það er tónlist eða íþróttir, óháð efnahag viðkomandi fjölskyldu. Þetta hefur gjörbreytt landslaginu er varðar frístundir og tómstundaiðkun á Íslandi.
Svo er það nú bara þannig að við höfum staðið okkur mjög vel að undanförnu í knattspyrnu og líka í tónlist. Hvers vegna? Það er vegna þess að við erum búin að fjárfesta mjög mikið í uppbyggingu íþróttamannvirkja og í tónlistarfræðslu. Það eru tónlistarskólar úti um allt land, gríðarlegur metnaður. Mér finnst svo brýnt að við höldum í þetta og að aðgengi sé gott og það sé óháð í raun og veru búsetu og efnahag barnanna.