fjármálaáætlun 2019--2023.
Frú forseti. Ég vil spyrja hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra fyrst um áformaða eflingu starfsmenntunar á framhaldsskólastigi og síðan um aðgengi að námi.
Jón Torfi Jónasson skrifaði árið 1997 grein í tímarit félagsvísindadeildar Háskóla Íslands sem bar yfirskriftina Þjóðsögur úr skólakerfinu. Þar setur hann fram sex staðhæfingar um þróun íslenska skólakerfisins og með rökum dregur hann þær síðan allar í efa. Ein þessara staðhæfinga er um þróun starfsnáms og boðuð þáttaskil með framhaldsskólalögum frá árinu 1996. Þegar Jón Torfi skrifar greinina árið 1997 er hlutfall þeirra sem stunda starfsnám í framhaldsskólum 28% sem er nánast sama hlutfall og tilgreint er í fjármálaáætluninni fyrir árið 2016. Í Hollandi og Svíþjóð er sambærileg tala 70% og í Þýskalandi 80%.
Jón Torfi bendir á að ef starfsmenntun á framhaldsskólastigi sé mikilvæg, m.a. út frá sjónarhóli nemenda eða atvinnulífs, þá sé ekki seinna vænna að snúa við blaðinu. Lengi hafi verið samstaða um þetta í umræðum um úrbætur á skólastarfi. Þannig er það enn í dag. Niðurstaða Jóns Torfa er að ekki verði umskipti í þróun hefðbundinnar starfsmenntunar í framhaldsskóla og vægi hennar muni þess vegna halda áfram að minnka. Sú þjóðfélagsþróun sem ráði ferðinni virðist ekki leyfa annað eða gera að minnsta kosti endurreisn starfsmenntunar á framhaldsskólastigi erfiða. Það hefur nokkurn veginn gengið eftir.
Í fjármálaáætlun til næstu fimm ára er talað um að efla starfsnám í þágu fjölbreytni og öflugra samfélags og endurskoðun laga um framhaldsskóla frá 2008 er boðuð. Ég spyr hæstv. menntamálaráðherra hvað það er í samfélagsþróun eða væntingum nemenda og atvinnulífs sem eykur líkur á að þetta ágæta markmið náist frekar á næstu fimm árum en á síðustu tveimur áratugum.