148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[19:01]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Frú forseti. Mig langar í fyrri ræðu minni að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í grunnskólastigið. Ég hef töluverðar áhyggjur af stöðu grunnskólastigsins og þó svo að í þeim OECD-samanburði, sem við erum svo oft að vísa til, séum við með eitt dýrasta grunnskólastigið, þá erum við samt ekki að sjá þann árangur sem við myndum vilja.

Það er líka alveg deginum ljósara að það álag sem við höfum skapað kennurum innan grunnskólastigsins er gríðarlega hátt. Það endurspeglast m.a. í því að þar virðist vera mikil kulnun í starfi, mjög algengt er að kennarar brenni út í starfi sínu og hætti. Við horfum raunar upp á það að innan við helmingur menntaðra grunnskólakennara starfar við kennslu í grunnskólum í dag. Þetta er sammerkt með fjölmörgum öðrum kvennastéttum, fjölmennum kvennastéttum, sem starfa fyrst og fremst hjá hinu opinbera. Birtar hafa verið áætlanir um að hér kynni að vanta um tvö þúsund kennara á næstu árum á grunnskólastiginu og það er mikið áhyggjuefni. Auðvitað byggjum við ekki upp öflugt, blómlegt menntakerfi án kennaranna sem eiga að vera að kenna unga fólkinu.

Ég hefði áhuga á að heyra sjónarmið hæstv. ráðherra, bæði þegar kemur að því sem gagnrýnt hefur verið að stjórnsýsla ráðuneytisins, sem setur hinar faglegu kröfur, sé ekki í nægilega miklum tengslum við grunnskólastigið sjálft. En það sem blasir líka augljóslega við þegar kemur að þessum mönnunarvanda er að laun eru ekki lengur samkeppnisfær á grunnskólastiginu og það er reyndar óvenjumikill launamunur þegar maður horfir á OECD-samanburðinn á milli grunnskólastigsins og framhaldsskólastigsins. Hvað sér hæstv. ráðherra fyrir sér í þessu? Því að það er alveg ljóst að taka þarf á þessum vanda. Þetta er auðvitað bara hefðbundið vandamál framboðs og eftirspurnar, sem ég veit að er hæstv. ráðherra vel kunnugt, (Forseti hringir.) og það þarf auðvitað að hækka laun ef manna á skólana.