fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Ég ætla í stuttu máli að gera grein þeim áherslum sem falla undir þá málaflokka sem ég starfa með, landbúnaður, sjávarútvegur og fiskeldi og hluti af nýsköpun og rannsóknum, háskólastig að því er snertir landbúnaðarháskólann og svo er ráðuneytið undir yfirstjórn sjávarútvegsráðherra og landbúnaðarráðherra samkvæmt forsetaúrskurði.
Þessir fjárlagaliðir eru samtals u.þ.b. 24–25 milljarðar á ári, 24.478 millj. kr. á árinu 2018. Stærstu liðirnir í þessu eru að sjálfsögðu landbúnaðurinn þar sem búvörusamningarnir eru langstærstir. Ef við horfum á umfang landbúnaðarins er heildarframleiðsluvirði landbúnaðar á Íslandi rétt tæpir 70 milljarðar, 69 milljarðar, á ári. Það eru um 4.200 lögbýli í ábúð á landinu, 3.200 þeirra eru með búskap, framleiða kjöt, egg og mjólk. Þar er stunduð garðyrkja og sömuleiðis ferðaþjónusta og ýmis annar atvinnurekstur þannig að þarna er heilmikil starfsemi. Þarna er um að ræða 1,8% af vinnuafli á vinnumarkaði sem er beinlínis við landbúnaðinn og svo erum við með um 7.000 afleidd störf.
Ef við horfum á sjávarútveginn er hann sömuleiðis mjög mikilvæg atvinnugrein fyrir landsbyggðina, 4% af vinnuafli þjóðarinnar vinna við sjávarútveg, fiskveiðar og fiskvinnslu. En ef við horfum á störf í þessum greinum utan höfuðborgarsvæðisins eru það um 10% af vinnuafli. Sjávarútvegurinn framleiðir sömuleiðis mjög mikil verðmæti, framleiðsluverðmæti eru rúmir 200 milljarðar á árinu 2017, hafði þó að vísu dregist saman og hefur ekki verið lægra frá árinu 2008. Heildarafli íslenskra skipa var um 1.120.000 tonn sem skiptist þannig að 450.000 tonn af því voru botnfiskur og 670.000 tonn uppsjávarfiskur. Þarna er mikið umleikis og þegar ég ræði um það að 10% fólks á vinnumarkaði úti á landsbyggðinni starfi við þetta tvennt skulum við hafa í huga að gríðarlegur fjöldi afleiddra starfa tengist sjávarútveginum.
Stærstu verkefni á þessu málefnasviði, bæði í ár og næstu tvö til þrjú árin, verða að vinna að samkeppnishæfni sjávarútvegsins og landbúnaðarafurða. Styrkja þarf stöðu sjávarútvegsins í samkeppni við erlenda framleiðendur og landbúnaðurinn hér innan lands þarf að halda uppi byggðafestu og gera bændum kleift að rækta nýja skóga, ef svo mætti að orði komast, með því að gera mögulegt að þeir geti breytt um áherslur í búskap sínum. Þar blasa sömuleiðis við mjög miklar áskoranir á sviði landbúnaðarins sem og sjávarútvegsins. Á sviði landbúnaðarins eru sérstaklega þættir sem lúta að auknum tollkvótum, meira frelsi til innflutnings á landbúnaðarvörum. Sömuleiðis eru þættir sem snúa að því sem kallað hefur verið „hráakjötsmálið“, svo smekklegt sem það nú er, er lýtur að innleiðingu ákveðinna tilskipana frá Evrópusambandinu í íslenskan rétt. Það er, eins og sagt er, mörg búmannsraunin og að mörgu að hyggja, sérstaklega í landbúnaðarmálum.
Ég vil þó undir lok þessarar stuttu ræðu minnar nefna mál sem kom til umræðu á þinginu í vikunni og á eftir að verða gríðarlega mikil umræða um og er mikilvægt mál, hvernig svo sem menn nálgast það. Það lýtur að uppbyggingu fiskeldis í landinu. Þar er verið að byggja upp nýja atvinnugrein af miklum krafti. Hún kallar á það að við umgöngumst uppbygginguna en ekki síður náttúruna af fullri virðingu og gætum þess að uppbyggingin verði í sátt við umhverfið. Ég tel að þar liggi mjög mikil tækifæri ef við berum gæfu til að vinna að framgangi og uppbyggingu þessarar atvinnugreinar af skynsemi og ábyrgð.