fjármálaáætlun 2019--2023.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör. Ég ætla að venda mínu kvæði í kross og ræða aðeins um fiskeldið sem hefur verið að byggjast upp hratt og hefur skapað fjölda starfa. Það er mikilvægt að það sé í sátt við umhverfið og aðra atvinnuvegi, sé sem mest umhverfisvænt. Mig langar að vita hvort hæstv. ráðherra telji nægilegt fjármagn til þess að tryggja nauðsynlegar rannsóknir og eðlilega vöktun vegna áhættumats sem þarf að vera lifandi og í stöðugri skoðun og til að undirbyggja það með sem bestum hætti að áhættumat verði reglulega endurskoðað af Hafrannsóknastofnun. Er tryggt nægt fjármagn til þess að svo megi vera?
Hafrannsóknastofnun hefur mátt búa við það lengi að vera vanfjármögnuð. Hún hefur stórt hlutverk, ekki bara varðandi sameiginlega auðlind okkar í sjónum, og nú fiskeldið, heldur líka varðandi ný lög sem voru samþykkt í fyrra um enn frekari nýtingu á þangi og þara í Breiðafirði. Hefur Hafrannsóknastofnun næga fjármuni til að sinna þessu mikilvæga hlutverki sem er undirstaða gjaldeyrisöflunar þjóðarinnar? Að því sama má spyrja gagnvart Matvælastofnun og hennar stóra hlutverki við eftirlit með fiskeldinu, velferð dýra og fleiri þáttum. Verkefnin hafa alltaf verið að aukast hjá Matvælastofnun.
Og svo ein létt í lokin um veiðigjöldin. Hvernig telur ráðherra þróun veiðigjalda verða næstu árin? Sér hann fyrir sér að þau muni hækka, lækka eða að það verði einhver skipting á milli ólíkra útgerðarflokka varðandi mismunandi gjaldtöku?