148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[20:01]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Herra forseti. Hæstv. forsætisráðherra orðaði það svo, í umræðum um fjármálaáætlun á síðasta ári, að fjármálaáætlun hverrar ríkisstjórnar væri grundvallarplagg. Í því felist ákveðin stefna og ákveðin sýn. Gott og vel. Með þau orð í huga hef ég verið að lesa fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar. Og ég verð að segja að þegar kemur að sjávarútvegskaflanum er stefnuleysið hrópandi í þá veru að ná sátt sem er svo mikilvæg fyrir sjávarútveginn. Ég er nefnilega sammála hæstv. sjávarútvegsráðherra, við erum í grunninn með mjög öflugt sjávarútvegskerfi sem við erum stolt af. Við höfum aukið verðmætasköpun mun meira en gert var á sínum tíma og við erum í „grund og bund“, afsakið slettuna, hæstv. forseti, með gott kerfi. En við þurfum að ná þessari sátt.

Það er ekkert sem gefur vísbendingar um að menn ætli að halda áfram með þá tilraun sem farið var af stað með á síðasta ári þar sem allir flokkar á Alþingi voru fengnir að borðinu til að reyna að ná slíkri sátt. Ég spái því að þrátt fyrir að það gangi vel, þrátt fyrir að við séum með öflugt kerfi sem við erum stolt af, ekki síst á erlendri grundu, muni það á endanum springa framan í okkur ef það verður þannig að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, og nú með Vinstri græn sem veita þeim skjól í öllu þessu, standi áfram fyrir þessari varðstöðu hagsmuna í sjávarútvegi; menn segja ávallt að það sé svo flókið, það sé svo erfitt að innheimta þetta sanngjarna gjald.

Það verður ekki sátt um að breyta veiðigjaldinu sem hefur það eitt að markmiði að lækka veiðigjöld. Við þurfum að ná sáttinni fram. Við þurfum að ná aðferðafræðinni fram. Þess vegna spyr ég: Hvar er tilraun ríkisstjórnarinnar, hvar er vísbending ríkisstjórnarinnar og hæstv. sjávarútvegsráðherra í þá átt að ná raunverulegri sátt um þessa mikilvægu atvinnugrein, þessa grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar?