fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Nokkrar spurningar í þessari svonefndu síðari umferð. Ég ítreka það sem ég var að reyna að spyrja hæstv. ráðherra um áðan: Hvernig sér hann framhaldið af því að reyna að ná þverpólitískri sátt um sanngjarnt gjald af auðlindinni? Hvernig ætlar hann að gera það? Nefnd sem var skipuð á síðasta ári af öllum flokkum er ekki lengur að störfum. Hvernig ætlar ráðherra sjálfur að beita sér fyrir því að það verði þverpólitísk sátt um auðlindagjald í sjávarútvegi? Eða á kannski ekkert að gera, á bara að bíða eftir að veiðigjaldsnefndin skili og fara í það og ekkert annað? Um það eitt og sér verður ekki sátt til lengri tíma.
Önnur spurning tengist matvælastefnunni sem ég vil hrósa ráðherra fyrir að halda áfram með. Ég tel mikilvægt að halda áfram þeirri vinnu sem var hafin, að móta matvælastefnu, en þá hlýt ég að spyrja hvort ráðherra deili með mér þeirri hugmynd að sameina AVS, sjóðinn um aukið verðmæti sjávarfangs, Framleiðnisjóði landbúnaðarins, þ.e. að búa til einn öflugan matvælasjóð sem kemur úr okkar helstu matvælagreinum. Þannig gætum við reynt að spara m.a. í yfirstjórninni allt að 30 milljónir, pening sem færi í rannsóknir eða stuðning innan slíks öflugs matvælasjóðs. Deilir hann þeirri hugmynd að það væri hægt að sjá sameiginlegan sjóð landbúnaðar og sjávarútvegs í einum öflugum matvælasjóði til lengri tíma?
Mig langar líka að spyrja hæstv. ráðherra á þeim stutta tíma sem hér er eftir þriðju spurningarinnar. Ég sakna þess að sjá ekkert um nýtt hafrannsóknaskip. Bjarni Sæmundsson verður 50 ára 2020. Það liggur fyrir skýrsla um að hann sé allt að því ónýtur. Það voru gerðar breytingar á honum og eitthvert viðhald sem átti bara að duga til 2013–2015. (Forseti hringir.) Það liggur ljóst fyrir að það þarf að fá nýtt hafrannsóknaskip. Ég hefði gjarnan viljað sjá fjármagn til lengri tíma innan fjármálaáætlunarinnar í þá veru því að við þurfum að styðja enn frekar við hafrannsóknir við Ísland. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)