fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Hæstv. utanríkisráðherra nefndi hér áðan í svari sínu að fjármagnið sjálft réðist af fjármálaráðuneytinu og auðvitað þinginu. Auðvitað er það hins vegar þannig að utanríkisráðherra forgangsraðar síðan fjármagninu.
Ég hef heyrt þær sögur í dágóðan tíma og svolítið oft að forgangsröðun hagsmunagæslu Íslands hafi aukist heldur mikið í kjölfar Brexit gagnvart Bretlandi til þess að tryggja viðskiptahagsmuni Íslands gagnvart því ágæta landi. Ég hef hins vegar heyrt að þetta hafi verið á kostnað hagsmunagæslu okkar í Brussel gagnvart EES-samningnum.
Þegar ég les þetta sé ég akkúrat hið öfuga. Ég verð að segja að mér þótti svolítið vænt um að sjá það á bls. 164. Þar er vitnað í hina ágætu skýrslu Utanríkisþjónusta til framtíðar – hagsmunagæsla í síbreytilegum heimi. Þar er sérstaklega talað um öflugri framkvæmd EES-samningsins sem í skýrslunni góðu felst í liðum 32 til 40. Mér þykir mjög vænt um að lesa í 32. lið að hagsmunagæsla Íslands í EES-samstarfinu verði efld með það að meginmarkmiði að hafa áhrif á hagsmunamál á mótunarstigi í ákvörðunarstofnunum ESB. Þetta er þvert á það sem ég hef verið að heyra úr nokkrum áttum.
Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra aðeins meira út í það hvað felist í þessu. Sérstaklega langar mig að heyra hvernig hæstv. ráðherra forgangsraðar þessu tvennu, þ.e. hagsmunagæslu okkar vegna Brexit annars vegar og hins vegar í Brussel vegna EES-samningsins.
Einnig langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann telji þessa hagsmunagæslu nógu vel fjármagnaða núna og hafi verið eða verði samkvæmt áætluninni.
Í þriðja lagi spyr ég hvort þetta þýði að fleira fólk verði staðsett í Brussel til þess að verja íslenska hagsmuni gagnvart EES.