148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[21:15]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Í ljósi upphafssvars hæstv. ráðherra vil ég benda honum á að ég var einmitt að gera það sem hann var að biðja mig um að gera, sem var að spyrja hæstv. ráðherra ef ég heyrði einhverjar sögur. Það er það sem ég var að gera. Ég er vissulega með skýrsluna, en þakka samt hæstv. ráðherra fyrir að benda mér á hana.

Kannski er ég bara að misskilja þetta eitthvað, en mér fannst hæstv. ráðherra taka þessum spurningum eins og ég væri að gera lítið úr hagsmunagæslu Íslands gagnvart Bretlandi eða gefa í skyn að Bretland væri einhvern veginn ekki mikilvægt viðskiptasvæði og hagsmunagæsla okkar ekki mikilvæg þar. Það er ekki það sem ég vildi segja, heldur einungis það að hagsmunagæsla sé afskaplega mikilvæg gagnvart EES eins og kemur fram í ágætri skýrslu. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið.

Mig langar hreinlega að heyra aðeins meira um þetta í sambandi við hin fagráðuneytin. Og endilega leiðréttið mig ef ég er að heyra fleiri rangar sögur: Telur hæstv. ráðherra að nóg sé að gert samkvæmt þessari áætlun í því að fagráðuneytin á Íslandi hafi sína viðveru í Brussel? Telur hæstv. ráðherra að samkvæmt þessari áætlun sé fjármagnið nóg til þess að standa mynduglega að hagsmunagæslu Íslands gagnvart EES? Eða telur hæstv. ráðherra að meira þurfi til eða geti hugsanlega þurft til? Ég ætla bara að segja það eins og það er að ef svo er þá er sá sem hér stendur alfarið reiðubúinn til að standa með hæstv. ráðherra í því að efla þá hagsmunagæslu. Það er þess vegna sem ég spyr.

Ég vona að fyrri spurning mín eða þessi hafi ekki verið eitthvað pirrandi. Ég held að við séum öll í sama liðinu þegar kemur að hagsmunum Íslands jafnvel þótt við spyrjum spurninga um hinar ýmsu sögur sem við heyrum hér og þar.