148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[21:36]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir traustið. Hann lýsir hér samskiptum Íslands og Bandaríkjanna. Það er engu við það að bæta enda þekkir hv. þingmaður þessi mál mjög vel. Í rauninni er það sögulega stórmerkilegt sem hann nefndi að þegar kom að fyrstu heimsókn fyrsta forseta lýðveldisins var hún til Franklins Delanos Roosevelts, þáverandi forseta Bandaríkjanna. Það má ýmislegt fleira nefna sem ég ætla ekki að gera hér. Það sem ég ætla að gera að umtalsefni mínu, af því að ég hef tækifæri til þess, er að jafn mikilvæg og staðan í Evrópu er fyrir okkur sem hv. þingmaður vísar til er ekki síður mikilvæg sú staða núna að ef við ætlum að halda þeim lífskjörum sem við viljum halda þurfum við að auka útflutningsverðmæti okkar um 1 milljarð á viku næstu 20 árin. Við verðum að horfa til þess líka að hlutirnir eru að breytast og við gætum séð hér nýjar siglingaleiðir tiltölulega fljótlega. Það verður eins og nýr Súez-skurður eða Panama-skurður varðandi styttingu, þetta er stytting siglingaleiðarinnar á milli Íslands og Asíu um 40%.

Þetta er nokkuð sem við verðum að huga að, tækifæri og ógnanir að vísu líka, en við verðum að nýta þau tækifæri sem eru til komin hvað það varðar að t.d. þjónustuviðskipti eru núna nokkurn veginn án landamæra. Við erum orðin ferðamannaland og það liggur alveg fyrir um þessi markmið sem við viljum setja okkur til að geta haldið fjármálaáætlun og annað slíkt að við munum ekki byggja aukninguna á þessum hefðbundnu atvinnugreinum, sjávarútvegi, iðnaðinum og ekki einu sinni ferðaþjónustunni. Við þurfum að nýta okkur hátæknina, skapandi greinar og við þurfum að selja þessu fólki sem er að vaxa upp, þessi millistétt, vörur og þjónustu. Ég er ekki að gera lítið úr því að ræða (Forseti hringir.) það sem gerist í Evrópu en við þurfum að líta til þess að þessir markaðir í Asíu eru að stækka og (Forseti hringir.) einhverjir munu selja þeim vörur og þjónustu og það er afskaplega mikilvægt að við verðum þar að einhverjum hluta.