fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Það fór þó ekki svo að þessi umræða yrði ekki dálítið áhugaverð. Ég treysti því að hæstv. utanríkisráðherra muni svara mér af sinni alkunnu hógværð. Það er auðvitað mjög áhugavert að hlusta á yfirlýsingar hæstv. utanríkisráðherra þegar kemur að Viðreisn og hvernig við séum að tala niður EES-samninginn. Ég er nokkuð viss um að frændur okkar og nágrannar í Noregi eru ekki með þungar áhyggjur af málflutningi Viðreisnar þegar kemur að EES-samningnum en öllu meiri áhyggjur myndi ég ætla af málflutningi þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem markvisst eru einmitt að grafa undan EES-samstarfinu. Þar kemur skýrt fram að sú gagnrýni sem þeir þingmenn færa hér fram er að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa ekki sinnt hagsmunagæslu Íslands þegar kemur að innleiðingu á EES-gerðum, nú síðast á þriðja orkupakka Evrópusambandsins.
Það sem er skemmtilegast þegar kemur að málflutningi hæstv. utanríkisráðherra er hvernig hagsmunamat hann leggur á Evrópusamvinnuna. Hann talar um kostnað á innleiðingu á tollkerfi upp á 3 milljarða. Þetta kalla ég baunatalningu þegar við horfum á heildarhagsmuni landsins af utanríkisviðskiptum, stöðugleika í efnahagslífinu og kostnað af sjálfstæðri mynt. Það er það sem málflutningur okkar í Evrópuumræðunni hefur snúist um fyrst og fremst, hvernig við sköpum okkur, íslensku atvinnulífi, sem hagfelldast starfsumhverfi til lengri tíma litið. Við horfum m.a. til þess að rekstur sjálfstæðrar myntar kostar okkur um 200 milljarða á ári. Þá hef ég ekki þungar áhyggjur af einskiptiskostnaði við innleiðingu á tollkerfi sem hæstv. utanríkisráðherra kemur inn á.
Það sem færi talsvert betur á í umræðu hér um fjármálastefnu um utanríkismál er að við hefðum áður en að þessari umræðu kom tekið til (Forseti hringir.) umfjöllunar skýrslu utanríkisráðherra um endurskoðun á utanríkisþjónustunni sem er um margt mjög áhugavert plagg, (Forseti hringir.) en hefur ekki komið til umræðu í þinginu enn þá, og raunar líka þá skýrslu sem utanríkisráðherra á að flytja á þinginu á morgun. Það er ekki að sjá í þessari áætlun hæstv. utanríkisráðherra þegar kemur að fjármálaáætluninni sjálfri hvar sé að finna stað þeim útgjöldum sem eiga að fylgja (Forseti hringir.) breyttum áherslum Íslands í utanríkismálum á komandi árum.