148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[22:10]
Horfa

utanríkisráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Staðreyndirnar liggja fyrir. Við erum búin að taka 13,4% af gerðunum frá því að við gengum inn í EES-samninginn. Hv. þingmaður getur farið í alla þá talnaleiki sem hann kærir sig um en hann hleypur ekki frá þessu. (Gripið fram í.) Hann heldur því samt áfram. Til hvers að grafa undan EES-samningnum? (ÞorstV: Þetta er þvættingur.) Hann er að grafa undan EES-samningnum og engir hafa gengið harðar í því að grafa undan EES-samningnum en ESB-sinnar. Það verður að stoppa það. (ÞorstV: Þetta er rakalaus þvættingur.)Hv. þingmaður hefur heldur ekki upplýst þjóðina, þótt hann viti það, um hvaða afleiðingar það hefur að vera í sameiginlegri viðskiptastefnu ESB. Það þýðir að verð hækkar á vörum til almennings og fyrirtækja í landinu. Síðan mætti nefna ýmislegt fleira en hv. þingmaður var í seinna andsvarinu vonandi, og ég vona að það verði þannig áfram, aðeins að draga í land, í það minnsta reyndi hann ekki að halda því fram að evran væri lausn allra mála, enda er (Forseti hringir.) hálfhjákátlegt að tala um það í dag.