fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Hlutfall ferðaþjónustu af þjóðarframleiðslu hækkar sífellt og er nú orðið meira en hjá sjávarútvegi og framleiðslu málma samanlagt. Hagstofan áætlar að heildarútflutningstekjur af erlendum ferðamönnum hafi numið 463 milljörðum kr. árið 2016 og verið u.þ.b. 39% heildarútflutningstekjum þjóðarbúsins það ár sem er meira en sjávarútvegur og álafurðir skiluðu samanlagt. Ísland er orðið dýrasti áfangastaður heims og er verðlag 28% hærra en annars staðar á Norðurlöndum að meðaltali.
Ferðaþjónustan er orðin ein umfangsmesta atvinnugrein hagkerfisins en á árinu 2017 störfuðu rúmlega 27.000 manns í ferðaþjónustu. Staðan er sú að 1% fyrirtækja er með helming allra tekna ferðaþjónustunnar og 93% fyrirtækja í ferðaþjónustu með einungis 19% rekstrartekna. Ferðaþjónustan á Íslandi einkennist því af fáum mjög stórum fyrirtækjum og mörgum litlum. Stóru fyrirtækin eru öll á suðvesturhorninu og eru mjög ráðandi í allri umræðu og markaðssetningu landsins.
Hlutfall ferðamanna á móti íbúum er langhæst á Íslandi í samanburði við vinsælustu ferðamannaþjóðir Evrópu sem gefur vísbendingu um álag á innviði viðkomandi þjóðar. Það þarf að gera miklu betur þegar kemur að dreifingu ferðamanna, en á sama tíma og hlutverk markaðsstofa landshlutanna verður mikilvægara er búið að skera niður fjárframlög til þeirra og allt fjármagnið sett í markaðssetningu erlendis.
Virðulegi forseti. Ég fagna því að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur setji fram jákvæð og metnaðarfull markmið og aðgerðir í þessum málaflokki en þau eru fugl í skógi en ekki í hendi þar sem draga á úr framlögum til málaflokksins þrátt fyrir allt.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort henni þyki ekki (Forseti hringir.) skjóta skökku við að minnka framlög til málaflokksins á sama tíma og mikilvægi hans eykst stöðugt.