148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[22:20]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Ég ætla að nota þennan seinni hluta sem ég hef til að gera að umtalsefni nýsköpun, en rúmlega helmingur íslenskra fyrirtækja með tíu starfsmenn eða fleiri stunda nýsköpun. Almennt er talið að til þess að skila arði til samfélagsins þurfi hlutfall þeirra fyrirtækja sem stunda nýsköpun að vera yfir 80%. Hér er því augljóslega mikið verk að vinna og við hér á landi erum eftirbátar hinna Norðurlandanna í þessum málaflokki. Það kann að vera hætta á því að við drögumst aftur úr vegna hinnar hröðu samfélagsþróunar þar sem verðmætasköpun í þekkingariðnaði eykst sífellt.

Í fjármálaáætlun er ekkert rætt um að styrkja eða auka samkeppnissjóði, heldur einungis talað um að meta árangur af starfsemi Tækniþróunarsjóðs, móta aukið hlutverk hans, meta umhverfi nýsköpunar og móta tillögur til úrbóta á næstu fimm árum. Það er gott og blessað, en tækniþróun er allt of hröð til að við getum tekið okkur fimm ár í að skoða, endurmeta, móta og koma með tillögur. Við þurfum að ganga miklu lengra í að efla umhverfi nýsköpunar á Íslandi en gert er ráð fyrir í fjármálaáætlun. Þótt vissulega megi sjá aukningu í þessum málaflokki endurspeglar sú aukning hreinlega ekki aukið mikilvægi nýsköpunar á Íslandi þar sem samkeppnisumhverfið og markaðsumhverfið er gjörvallur heimurinn þar sem allt er á fleygiferð.

Ég spyr hæstv. ráðherra hvort hún telji sig hafa nægilegt fjármagn til að bæta umhverfi nýsköpunar á Íslandi og í framhaldi hvernig vinnunni verður háttað við gerð nýsköpunarstefnu.