fjármálaáætlun 2019--2023.
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu og get tekið undir í raun allt sem kom fram í máli hennar.
Það er nefnilega alveg rétt, við eigum mjög mikið undir því að dreifa ferðamönnum betur um landið. Við höfum ákveðin verkfæri til þess að gera það. Líkt og hv. þingmaður kom inn á er það m.a. og kannski aðallega til þess að fleiri njóti, þ.e. landið allt og íbúar landsins alls, en ekki síður til þess að dreifa álaginu og létta á álagi sem er sums staðar annars staðar á landinu. Það er auðvitað hagur okkar allra að vel takist til til verndar náttúru, til þess að tryggja góða upplifun ferðamanna og til þess að huga að samfélagslegum þolmörkum íbúa sem hér búa.
Hvað varðar sérstaklega spurningu hv. þingmanns um jöfnun eldsneytiskostnaðar þá er það ein leið sem hægt er að fara í til þess að stuðla að því að fleiri fljúgi beint inn á Akureyri og Egilsstaðaflugvöll. Þetta hefur verið til skoðunar lengi í ráðuneytum, vissulega ekki á forræði míns ráðuneytis. En það er frá því að segja að í byggðaáætlun sem samgönguráðherra lagði fram er þetta eitt þeirra verkefna sem lagt er til að farið verði í. Ég bind vonir við að við náum að klára það mál. Ef það getur hjálpað til til þess að stuðla að því að fleiri ákveði að fljúga inn á þessi landsvæði beint þá er það auðvitað ótrúlega sterkt verkfæri til þess að dreifa ferðamönnum, til að landið allt njóti góðs af og til þess að dreifa álagi.