148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[22:28]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M):

Það er ánægjulegt að heyra hversu sammála við erum í þessu máli. Auðvitað þarf að huga að þessu vegna þess að við þurfum líka að verja landið. Sums staðar er jafnvel óbætanlegur skaði kominn fram nú þegar, þess vegna þurfum við að taka þessi mál svolítið alvarlega. Til að setja þetta í samhengi þá skilst mér, það eru reyndar ársgamlar tölur frá Markaðsstofu Norðurlands, að það sé 7,7% verðmunur á þotueldsneyti milli Keflavíkur og Akureyrar og hann er 15,2% á milli Egilsstaða og Keflavíkur.

Hæstv. ráðherra nefndi áðan flugþróunarsjóð sem ég vil einnig spyrja um. Nú á að leggja hann niður við árslok 2019, en hann er samt inni í áætlun. Því er haldið fram þar að hann verði smærri í sniðum. Mér finnst það svolítið sérstakt af því að við vitum að ferðamönnum mun fjölga. Þá velti ég því fyrir mér hvort það verði farnar einhverjar aðrar leiðir til þess að bakka upp það að flugþróunarsjóðurinn lækkar sín framlög.