148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[22:30]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Frú forseti. Við höfum sett 300 milljónir á ári í flugþróunarsjóð. Sú upphæð hefur ekki farið út. Í rauninni værum við í mjög góðri stöðu ef svo væri af því það myndi sýna fram á umfangið, þannig að hann hefur farið mjög hægt af stað. Það tekur tíma auðvitað að byggja þessar flugleiðir upp og öll þessi vinna tekur tíma og fólk er alls ekki að gefast upp á því.

Flugþróunarsjóður verður ekki lagður niður 2019. Við erum í rauninni að gera ráð fyrir því, í ljósi þess að upphæðirnar hafa ekki farið út, að dreifa fjármunum á fleiri ár þannig að upphæðirnar flytjast á milli ára.

Við höfum síðan ekki enn þá getað lagt fram frumvarp, heildarlög um flugþróunarsjóðinn, vegna ESA. Það gerir að verkum að við erum háð því sem kallast de minimis reglur, ég bara veit ekki íslensku þýðinguna á þeim, og getum aldrei úthlutað mjög stórum upphæðum til eins aðila, alla vega ekki á meðan við höfum ekki komið þessari löggjöf í gegn. En einmitt þessar reglur eiga í raun að vega upp á móti þessum aðstöðumun hvað varðar eldsneytiskostnaðinn. En ég fagna því þó, tek það fram, að það eigi að jafna hann vegna þess að þá er ákveðið forskot fyrir þessa velli úti á landi og ýtir aðeins á þá sem eru að hugsa um það að fljúga á aðra staði.

Ég hef hingað til leyft mér að segja að ég lít svo á, og vona að það sé rétt, að þetta sé ekki spurning um hvort heldur hvenær þessi flug verði í rauninni komin á dagskrá að staðaldri og við náum því í almennilegt horf vegna þess að við eigum mikið undir. Ég held einfaldlega að markaðurinn muni líka sjá það að það er mikið fengið með því að fljúga beint á Akureyrarflugvöll og Egilsstaðaflugvöll.