148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[22:47]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Frú forseti. Til að svara hv. þingmanni nánar hvað varðar dreifinguna getum við auðvitað haldið áfram að hækka jöfnunargjaldið. Það væri alveg ákvörðun að gera það en við sjáum bara að það hefur ekki skilað tilætluðum árangri. Meðal annars þess vegna erum við að skoða hvaða aðrar leiðir væru færar til að koma betur að því. Það hefur einfaldlega ekki virkað.

Hvað varðar flutninginn er bara ein gjaldskrá.

Til að svara spurningu um garðyrkjubændur, ég náði ekki að svara því áðan, tekur búvörusamningurinn á því að hluta en ég nefni þó að garðyrkjubændur fá í dag verulegar niðurgreiðslur hvað varðar orkukostnað. Ég vil samt nefna að það er alveg hárrétt hjá hv. þingmanni að hjá mörgum bændum er auðvitað bullandi nýsköpun í gangi, þar á meðal garðyrkjubændum. Af því að hv. þingmaður nefndi sérstaklega Friðheima er það auðvitað allt í senn, garðyrkjubændur, nýsköpunarfyrirtæki og ferðaþjónustufyrirtæki, algjörlega framúrskarandi. Ég hef að vísu sett af stað starfshóp til að fara nánar yfir stöðuna hvað varðar raforkuverðið. Hver er niðurgreiðslan í dag, hvaða aðrar leiðir væri mögulega hægt að fara ef einhverjar frekari? Slík vinna hefur áður verið í gangi en engin sérstök niðurstaða hefur komið úr því. Við settum það af stað fyrir um hálfum mánuði þannig að ég bind vonir við að einhver skýrari niðurstaða fáist. Ég nefni þó að þeir fá í dag verulega niðurgreiðslu og sömuleiðis tekur búvörusamningurinn á því.

Það er síðan önnur spurning að velta því upp hversu langt við eigum að ganga. Ef við erum að tala um umhverfismál í öðru hverju orði er ekki mjög umhverfisvænt að flytja inn grænmeti í miklum mæli. Þá er betra að það sé ræktað hér, fyrir utan allar aðrar ástæður fyrir því, þannig að ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa spurningu.