148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[22:56]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurningarnar. Hvað varðar þrífösun rafmagns er sú vinna í gangi líkt og ég rakti örstutt áðan. Miðað við það sem ég hef frétt af þeirri vinnu, ég hef aðeins fylgst með, virðist sem út úr henni komi m.a. tillögur sem munu kalla á kerfisbreytingar til að við komumst einfaldlega hraðar í þessar framkvæmdir. Það er mikið regluverk í kringum þetta og takmarkaður sveigjanleiki. Það blasir við, líkt og Rarik hefur sagt, að miðað við stöðuna eins og hún er núna verðum við búin að þessu árið 2036. Það er svolítið of langt þangað til. Þess vegna höfum við litið svo á að við séum til í að skoða aðrar leiðir til að ná því markmiði.

Hvað varðar smávirkjanirnar erum við þar með starfshóp í gangi. Orkustofnun kemur með okkur í það verkefni. Það eru mikil tækifæri fólgin í því, bæði til að bæta og efla kerfið en ekki síður sem ákveðin búbót, fyrir bændur sérstaklega sem eru með þannig umhverfi hjá sér að þeir geti farið í slíkar framkvæmdir.

Varðandi varmadælurnar hefur það verkefni svo sem verið í gangi. Við höfum farið í einstök verkefni, eins og t.d. í Vestmannaeyjum og á Snæfellsnesi. Helsti samstarfsaðilinn í því er Orkustofnun. Það hefur verið þannig hingað til. Það kallar líka á mikið samstarf og samtal við sveitarfélögin. Það hefur gengið vel en ég sé alveg tækifæri áfram í því og þess vegna er þetta inni í fjármálaáætlun sem sérstök aðgerð sem getur skilað okkur árangri.