fjármálaáætlun 2019--2023.
Frú forseti. Mig langar í fyrri umferðinni að gera að umræðuefni málefni nýsköpunar á Íslandi og hef nokkrar áhyggjur af stöðu þess málaflokks. Ég hefði áhuga á að heyra skoðanir og sjónarmið hæstv. ráðherra í þessum efnum.
Við höfum upplifað töluverða stöðnun í uppgangi nýsköpunar- og tæknifyrirtækja á undanförnum árum eftir mikið gróskutímabil áranna skömmu eftir hrun. Við erum reyndar svo heppin sem þjóð að við búum að alveg gríðarlega sterku frumkvæðis- og frumkvöðlageni, myndi ég segja. Það hefur aldrei vantað drifkraftinn þegar kemur að því að skapa og móta nýjar hugmyndir. En það er eins og okkur vanti rekstrarumhverfið fyrir þessi sömu fyrirtæki sem spretta upp úr þessum frjóa jarðvegi. Við erum enn að glíma við sama vandamálið, fyrirtækin komast allt of sjaldan á legg og þau fyrirtæki sem gert hafa það á undanförnum árum hafa því miður mörg hver flúið land eða verið seld allt of skjótt úr landi að mínu viti. Ef rætt er við forsvarsmenn atvinnulífsins í dag virðist harla lítið vera að gerast í vexti og í útflutningi okkar á grundvelli tækni og nýsköpunar á undanförnum árum. Það er áhyggjuefni í mínum huga þegar við tölum um tækifærin sem fylgja fjórðu iðnbyltingunni.
Þess vegna hefði ég áhuga á að heyra sjónarmið hæstv. ráðherra þegar kemur að stuðningi við þessi nýsköpunarfyrirtæki, hvernig við sköpum þeim samkeppnishæft rekstrarumhverfi á við það sem best gerist í nágrannalöndum okkar, kannski sér í lagi þegar kemur að framlögum okkar til þróunar og nýsköpunar og ekki síst opinberum framlögum. Við sjáum að ekki er lagður mikill metnaður í það í þessari fjármálaáætlun. Þessi framlög okkar hafa verið að dragast saman sem hlutfall af landsframleiðslu (Forseti hringir.) mörg undanfarin ár. Við erum vel fyrir neðan meðaltal OECD-ríkjanna nú þegar og virðist miðað við þessi áform að við munum dragast enn frekar aftur úr. Það væri áhugavert að heyra sjónarmið (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra í þessu mikilvæga máli.