148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[23:29]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég þakka ráðherranum fyrir svarið. Ég tók samt ekki eftir svari í sambandi við gjaldtöku með komu- og brottfarargjöldum. Það var mjög heitt mál hérna, eins og ég sagði, á tímabilinu 2103–2016. Það var aldrei tekin nein ákvörðun um það sem olli mikilli óþreyju og óþoli. Það væri gott að fá skýrt og gott svar við því hvort eitthvað sé í gangi á þeim sviðum.

Ég spyr líka ráðherrann: Hvernig á ríkið að standa að þjónustu við ferðamál?

Svo að nýsköpunarhlið ráðherrans, iðn- og tækninámi. Nú hefur iðn- og tæknigeirinn færst mikið út á land, það er mikill vöxtur í þeim málum. Gæti iðnaðar- og (Forseti hringir.) nýsköpunarráðherra átt samstarf við menntamálaráðherra um uppbyggingu iðnmenntunar úti á landi?