148. löggjafarþing — 48. fundur,  12. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[23:46]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Mig langar einmitt að ræða hér að lokum við hæstv. ráðherra um málefni ferðaþjónustunnar. Ég hef vaxandi áhyggjur af því í þessari mikilvægu grein — það þarf í sjálfu sér ekki að hafa mörg orð um hversu mikilvæg greinin hefur reynst okkur í endurreisn hagkerfisins, hversu mikilvæg hún hefur reynst landsbyggðinni, auðgað atvinnulífið víða um land og skilað okkur gríðarlega miklum verðmætum — að við séum ekki að ná utan um aðkomu hins opinbera að greininni.

Mér finnst okkur hafa mistekist að skapa greininni skýra, eðlilega lagaumgjörð og við um leið hafa gripið í sífellu til hálfgerðrar handstýringar stjórnvalda, t.d. hvað varðar uppbyggingu salernisaðstöðu um landið, sífelldar stagbætur eða reddingar á síðustu stundu varðandi ýmiss konar innviðauppbyggingu, af því við náum einhvern veginn ekki utan um það hvernig við ætlum að stýra ferðamönnum um landið, hvernig við ætlum að hafa gjaldtöku á greinina og hvernig við ætlum að skipuleggja lagaumhverfi þeirrar gríðarlega mikilvægu og stóru atvinnugreinar sem ferðaþjónustan er orðin. Ég hefði áhuga á að heyra sjónarmið hæstv. ráðherra um það.

Við höfum verið að vandræðast hér með gjaldtöku, t.d. varðandi náttúrupassa, virðisauka á ferðaþjónustu eða komugjöld. Við erum í að raun að koma aftur að umræðunni um komugjöld núna, en við höfum verið án niðurstöðu í þessu mikilvæga máli í sex ár að verða. Það er alvarlegt þegar haft er í huga að við höfum farið í gegnum algjöra sprengingu í ferðaþjónustu á sama tíma og stjórnvöld hafa ekki enn náð utan um stefnumótunina utan um greinina. Það þurfum við að taka til gagngerrar endurskoðunar.

Við þurfum að ná utan um aðgangsstýringuna og við þurfum að ná utan um gjaldtöku. Það er auðvitað líka vaxandi áhyggjuefni í þessu að hér er (Forseti hringir.) verið að selja eða markaðssetja aðgang að sameiginlegri auðlind landsins. Hvernig ætlum við að hafa tekjuöflun fyrir þjóðina? (Forseti hringir.) Nú er ég ekki að gera lítið úr beinum eða óbeinum tekjum sem ferðaþjónustan skapar, en þetta eru auðvitað ákveðin gæði (Forseti hringir.) sem fyrirtæki hafa hér aðgang að án gjaldtöku.