148. löggjafarþing — 48. fundur,  13. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[00:10]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Það sem ég vísa fyrst og fremst til í þessu efni er að í áætluninni fer rétt tæpur 1 milljarður kr. á ári óskiptur í málefni löggæslunnar, Landhelgisgæslunnar og fangelsismál. Það eru um 4 milljarðar á áætlunartímabilinu, sem gefur ráðuneytinu töluvert mikið svigrúm til þess að ráðast í styrkingu löggæslunnar á áætlunartímabilinu. Hér ber þess sömuleiðis að geta að á undanförnum árum höfum við aukið framlög til löggæslunnar um rétt um 34%, eða sem nemur rúmum 2 milljörðum að raungildi. Þeim fjármunum hefur verið varið til ýmissa verkefna, t.d. til að mæta auknu álagi við landamæri í Keflavík, til fjölgunar lögreglumanna á landsvísu, en sömuleiðis til endurnýjunar á búnaði og tækjum.

Við höfðum á þremur árum, fram til byrjunar síðasta árs, fjölgað lögreglumönnum um tæplega 30, frá 2014–2017. Þegar fjöldi faglærðra lögreglumanna var mestur, árið 2007, voru lögreglumenn um 60 fleiri.

Þar þarf maður að taka með í reikninginn að héraðslögreglumenn og afleysingamenn hafa áhrif á þessar brúttótölur. Þetta er umræða sem við höfum oft tekið í þingsal um að áður hafi lögreglumenn í landinu verið fleiri.

Það sem eftir situr er að í þessari áætlun er gert ráð fyrir (Forseti hringir.) óskiptu fjárframlagi sem getur nýst til þess að efla löggæsluna og þar er m.a. verið að horfa til þess að auka eftirlit úti á vegum.