fjármálaáætlun 2019--2023.
Hæstv. forseti. Milljarðurinn sem hæstv. ráðherra talar um hér dugar fyrir þeim 88 löggæslumönnum sem vantar í Reykjavík einni, á höfuðborgarsvæðinu einu. Hvað á þá að gera fyrir landsbyggðina? Hverjir eiga að fara út á vegina? Eða á kannski ekkert að bæta þessum 88 við þá sem vantar hér á höfuðborgarsvæðinu? Verður höfuðborgarsvæðið enn svelt og menn sendir til umferðareftirlits, sem ég viðurkenni náttúrlega að er mjög mikilvægt?
Á bls. 109 kemur líka fram, með leyfi hæstv. forseta, og nú bið ég hæstv. ráðherra að leiðrétta mig aftur ef ég fer rangt með:
„Í samstarfi lögreglunnar við tollgæsluna er nú unnið að úrbótum á greiningu farþegaumferðar til landsins með uppsetningu nýs móttökukerfis fyrir farþegaupplýsingar og uppsetningu fleiri sjálfvirkra landamærahliða.“
Þetta er eini staðurinn í áætluninni þar sem ég sé minnst á tollgæslu. Ég ætla að misnota aðstöðu mína, þar sem hæstv. fjármálaráðherra er náttúrlega fjármálaráðherra auk þess að vera starfandi dómsmálaráðherra í kvöld, og spyrja hann vegna þess að við áttum hér samtal um daginn um tollgæsluna: Hvar er aukningin til tollgæslunnar sem hann talaði um í þeirri umræðu og sagði að væri umtalsverð? Ég kannast við að tollgæslan fékk á sínum tíma, líklega árið 2016, um 90 millj. kr. árlega til þess að bæta við fólki hjá sér, sem dugar hugsanlega fyrir e.t.v. 10 tollvörðum, ef ég reikna rétt, sem eru, nota bene, tveir sólarhringsmenn. Nú langar mig til þess að spyrja um þá styrkingu og um frekara samstarf lögreglu og tollgæslu, því að við tókum líka „debat“ um daginn varðandi fíkniefnahundarekstur o.s.frv. Mig langar til þess að heyra frá hæstv. ráðherra hvað er fram undan í þeim efnum.