fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Varðandi kynferðisbrotamálin vil ég nefna það sérstaklega að þessi nýlega lagabreyting tel ég að hafi verið framfaraskref til frekari skýringar, en það er algerlega ómögulegt að segja til um hvort lagabreytingin muni kalla á aukin umsvif hjá lögreglunni, að kærum muni fjölga eða að þeim málum sem rata í ákæruferli muni fjölga. Um það getum við ekkert sagt á þessu stigi máls.
Hins vegar er það svo að hér í þessari fjármálaáætlun er verið að fjármagna aðgerðaáætlun um meðferð kynferðisbrota sem kynnt var í febrúarmánuði af dómsmálaráðherra. Eins og þar kom fram hefur hún verið unnin af samráðshópi fulltrúa frá ríkissaksóknara, héraðssaksóknurum, lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og fleiri aðilum, svo sem dómstólaráði. Hún er fjármögnuð út tímabil fjármálaáætlunarinnar. Hér er verið að auka fjárveitingar til þess að bæta við stöðugildum hjá lögreglunni og hjá héraðssaksóknara. Fjármagn til endurmenntunar er aukið og eins fjármagn til að bæta rannsóknabúnað og verklagsreglur hjá lögreglunni o.s.frv.
Hér er sömuleiðis lögð áhersla á að stytta málsmeðferðartíma, setja þessi brot í sérstakan forgang í réttarvörslukerfinu. Ég hef væntingar um að árangurinn af því sé í raun og veru í stöðugu endurmati þannig að við getum tryggt að það fjármagn sem áætlað hefur verið í þessari áætlun muni nýtast með sem allra bestum hætti. Ég er því miður að renna út á tíma með hina spurninguna.