fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Í ljósi #metoo-umræðunnar, sem fór ekki fram hjá neinum í aðdraganda síðustu Alþingiskosninga, langar mig að spyrja um fullyrðingu sem fram kemur í fjármálaáætlun, með leyfi forseta:
„Aðgerðaáætlun um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins hefur verið samþykkt og fjármögnuð …“
Dómsmálaráðherra hefur orðið tíðrætt um þessa aðgerðaáætlun og því þykir mér skorta á að tekið sé skýrt fram að hvaða leyti hún sé fjármögnuð. Í aðgerðaáætluninni eru mörg verkefni nefnd og má þar nefna að fara þarf í innviðauppbyggingu lögreglunnar almennt og eins má gera ráð fyrir að það vanti upp á sérhæfingu hvað varðar meðferð kynferðisafbrotamála. Auk þess þarf að byggja upp ákæruvaldið. Má þar helst nefna að stytta þarf málsmeðferðartíma hjá saksóknara.
Mörg verkefni liggja fyrir til þess að tryggja almennt réttaröryggi. Margir þættir hafa ekki hlotið nægilegt fjármagn síðustu ár og er því langt í land með að löggæslan og ákæruvaldið geti talist að fullu fjármögnuð.
Það sem ég hnýt um varðandi málaflokkinn er að gert er ráð fyrir kaupum á þremur nýjum þyrlum fyrir Landhelgisgæsluna. Auk þess er gert ráð fyrir auknu fjármagni til landamæravörslu. Vissulega eru þetta mikilvæg mál, en það vekur upp spurningar varðandi forgangsröðun ríkisstjórnarinnar hvað aðgerðaáætlun um meðferð kynferðisbrota varðar.
Ég spyr því: Hversu mikið fjármagn mun fara í að fjármagna téða aðgerðaáætlun? Er hún að fullu fjármögnuð í fjármálaáætlun? Er gert ráð fyrir sértækum aðgerðum til þess að takast á við slæma stöðu brotaþola kynferðisofbeldis?