fjármálaáætlun 2019--2023.
Takk fyrir þetta. Þetta voru allt tölur sem ég var búin að sjá í fjármálaáætluninni sem þú telur hér upp. Það liggur fyrir að lögreglan og löggæslan á Íslandi hefur verið undirfjármögnuð þó nokkuð lengi. Einnig er tekið fram í fjármálaáætluninni að veita eigi aukið fjármagn til að takast á við skipulagða brotastarfsemi og alvarleg ofbeldisbrot, ef ég man það rétt.
Ég er því að reyna að fá svar varðandi það fé sem ætlað er í að fjármagna þessa aðgerðaáætlun. Er tiltekið fjármagn hugsað til þess að takast á við þessi vandamál, sem liggja bæði innan löggæslunnar og náttúrlega líka innan dómstólakerfisins? Það hefur líka verið langur málsmeðferðartími í dómstólakerfinu, ekki bara hvað varðar kynferðisafbrotamál, heldur er almennt langur málsmeðferðartími þar. Mögulega vantar upp á sérhæfingu þar, en það hlýtur líka að vanta endurmenntun og starfsfólk.
Það sem ég er að reyna að fá svar við er hvort hér sé sérstaklega eyrnamerkt fjármagn til að takast á við þetta vandamál.