148. löggjafarþing — 48. fundur,  13. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[00:31]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Ég hef farið aðeins yfir það hvernig við deilum þessu aukna fjármagni niður á einstök verkefni og hefur hv. þingmaður vikið að því að það sé sömuleiðis gert í áætlunargreinargerðinni í fjármálaáætluninni. Ef við horfum á það eftir árum þá safnast það upp í 2,4 milljarða sem ætlaðir eru í bætta meðferð vegna kynferðisbrota. Það kemur síðan niður hjá ólíkum embættum. Við erum fyrst og fremst að tala um að fjölga hjá lögreglunni, fjölga þeim sem eru sérhæfðir og geta þá einbeitt sér í störfum sínum að þeim málaflokki. Síðan erum við sömuleiðis annars staðar í kerfinu að búa okkur undir að geta tekið á móti brotaþolum. Þá er ég að vísa t.d. til heilbrigðiskerfisins.

Hv. þingmaður vísar til þess að löggæslan hafi almennt verið undirfjármögnuð, en við setjum að auki óskipt fjármagn inn í löggæsluna, eins og ég hef áður vikið að í kvöld. Sá liður tekur reyndar líka utan um landhelgisgæslu og fangelsismál. Alls eru það 4 milljarðar á áætlunartímabilinu. Þegar þetta tvennt er lagt saman, þessir 2,4 milljarðar og svo aftur 4 milljarðar, held ég að við getum haldið því fram með nokkuð sterkum rökum að við höfum ekki aðeins gefið okkur tíma á undanförnum misserum og árum til þess að fullgera aðgerðaáætlun, heldur hefur hún nú verið kynnt og fylgt eftir í þessari fjármálaáætlun þannig að það er brotið niður á hin ólíku embætti hvernig við ætlum að fullfjármagna hana.