fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Það sem einkennir fjárveitingar til dómstóla á Íslandi er að við erum fyrst og fremst, eða ætti ég kannski að segja að uppistöðu til, að tala um launakostnað. Það er afskaplega lítill eiginlegur rekstur hjá dómstólum. Þegar framlög til dómstólanna vaxa er það yfirleitt vegna þess að laun eru að hækka eða dómendum að fjölga.
Ég ætla að leyfa mér að fleyta þeirri kenningu hér, án þess að hafa rannsakað það sérstaklega, að sérfróðum dómendum hafi verið að fjölga á árunum frá 2011 til undanfarinna ára einmitt vegna þess hversu mörg flókin stór mál hafa verið í dómskerfinu sem tengjast jú hruninu. En það er rétt sem hv. þingmaður segir að þeim er núna að fækka. Við höfum þó ekki séð í bakið á síðasta málinu, þó að síðasta málið hafi verið fært inn í dómskerfið.
Við höfum sömuleiðis verið að bregðast við þeirri stöðu sem var orðin óásættanleg og varðaði einmitt málsmeðferðartímann. Til þess að bregðast við því fórum við í aðgerðir við að koma á fót nýju dómstigi. Ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður hafi ætlað að vísa til Landsréttar en ekki landsdóms. Landsréttur er einmitt svar okkar við því hvað eigi að gera í þeirri stöðu að Hæstiréttur er að drukkna í málafjölda eins og við höfum séð á undanförnum árum. Að hluta til höfum við síðan með þessum sérfróðu meðdómendum og öðrum verið að vinna niðurstöðuna til þess að undirbúa starfsemi Landsréttar. Ég tel þess vegna að þær tölur sem hv. þingmaður tiltekur séu (Forseti hringir.) kannski ekki lýsandi fyrir stöðuna eins og hún verður eftir eitt, tvö ár heldur meira þann vanda sem við höfum einmitt verið að takast (Forseti hringir.) sérstaklega á við með því að koma á fót nýju dómstigi.