fjármálaáætlun 2019--2023.
Herra forseti. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra út í svipaða hluti og aðrir hv. þingmenn hafa gert og beina sjónum mínum fyrst að löggæslunni. Það eru verðug markmið og framtíðarsýn sem sett er fram í fjármálaáætluninni þar sem eitt markmiðið er m.a. að skilgreina eðli löggæsluáætlunar. Þar er verið að reyna að ýta undir löggæsluna. Það er eitthvað sem ég held að við tökum öll undir.
Ég vil hins vegar benda á að þáverandi innanríkisráðherra skilaði fyrir árið 2013 niðurstöðum nefndar varðandi eflingu löggæslunnar, gerð löggæsluáætlunar og skilgreiningar á hlutverki löggæslunnar sem slíkrar. Þar voru mjög konkret atriði sett fram, 3,5 milljarðar sem yrði, umfram verðlagshækkanir, að setja á fjárlög. Það ætti að fjölga löggæslumönnum um 236, bæta menntun og þjálfun löggæslumanna. Ég vil meina að það verkefni sé nú þegar hafið og held að það hafi verið mjög vel gert að setja það á háskólastig og færa í Háskólann á Akureyri. Og síðan að auka búnað löggæslunnar.
Hæstv. ráðherra hefur réttilega sagt að búið sé að fjölga á síðustu árum löggæslumönnum um 30. En það er langur vegur frá þeim 236 sem var tillaga þverpólitískrar nefndar, fulltrúa allra flokka. Hún komst að þeirri niðurstöðu í samvinnu við löggæsluna, við sérfræðinga ráðuneytisins. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Er núna, þegar unnið er að gerð löggæsluáætlunar, því að hæstv. ráðherra hefur sagt að 1 milljarður fari óskiptur til löggæslunnar á ári, Landhelgisgæslunnar og inn í réttarvörslukerfið — mun hann styðja ráðherrann í því að fjölga enn frekar löggæslumönnum en sem nemur þeirri aukningu sem kemur fram í fjármálaáætlun? Það skiptir gríðarlega miklu máli (Forseti hringir.) að þessi mál verði tekin föstum tökum. Það hefur sem betur fer verið jákvæð þróun á síðustu árum en hún er mjög hægfara og í engu samræmi við þá niðurstöðu sem þessi þverpólitíska nefnd auk sérfræðinga skilaði á sínum tíma.