148. löggjafarþing — 48. fundur,  13. apr. 2018.

fjármálaáætlun 2019--2023.

494. mál
[01:03]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Eins og ég hef komið hér inn á í fyrri ræðum erum við með einn óskiptan lið á þessu málefnasviði upp á um milljarð; það safnast upp í 4 milljarða yfir fjármálaáætlunartímabilið. Af þessum lið er ætlunin að styrkja starfsemi lögreglunnar, m.a. með fjölgun lögreglumanna. Liðnum er reyndar deilt með öðrum málaflokkum eins og fangelsismálum og landhelgisgæslu sem sömuleiðis þarf að fá viðbótarfjárheimildir. En það er alveg skýrt samkvæmt þessu að gert er ráð fyrir að við höldum áfram að fjölga lögreglumönnum og styrkja starfsemi lögreglunnar.

Þar fyrir utan erum við með í landamæravörslunni sérstaka fjárveitingu, aukningu upp á 3,5 milljarða á tímabilinu. Hluti af því er efling viðbúnaðar lögreglu við landamæravörslu til að tryggja öryggi og auka skilvirkni en ekki síst að koma í veg fyrir að afgreiðsluhraði falli. Við þurfum að tryggja að hann sé í lagi og haldist eitthvað í hendur við farþegaumferðina.

Ég held að þegar þetta er saman tekið, efling landamæravörslu með fjölgun þar og þessi óskipti liður, séum við með mjög skýrum hætti að taka til hliðar mjög ríflega fjárhæð til að mæta því ákalli sem þarna er. En ég get einfaldlega tekið undir það með hv. þingmanni að þörfin er til staðar, bæði hér á höfuðborgarsvæðinu en líka á mörgum embættum víða um landið.