fjármálaáætlun 2019--2023.
Virðulegi forseti. Ég verð að játa að ég þekki ekki nægilega vel til málefna Bjarkarhlíðar til að úttala mig um þau. Ég ætla samt að nota tækifærið og segja að við förum stundum þessa leið hér í fjárlagagerð eða á einstökum málefnasviðum að setja af stað tímabundin verkefni. Mér heyrist að hér sé um eitt slíkt að ræða. Það ætti ekki að vera neitt athugavert við að menn taki þá út árangurinn af því starfi og meti hvort ástæða sé til að halda áfram. Það verða þeir sem að þessu máli koma að taka til skoðunar.
Við höfum hins vegar mjög víða í fjármálaáætlun og fjárlögum undanfarinna ára sett af stað tímabundin verkefni. Ég nefni sem dæmi Inspired by Iceland verkefnið, þótt það tengist ekki því sem við ræðum hér. Það var sett sérstaklega af stað í tengslum við eldgos og átti að vera tímabundið átak til þriggja ára. En svo verður það hluti af árlegum útgjöldum og við bara færum það inn í ferðamálin eins og hvert annað verkefni sem eigi að lifa um alla framtíð. Fjölmörg önnur slík verkefni mætti tína til. Ég ætla ekki að úttala mig um þetta tiltekna mál en vísa til þessara almennu orða. Ráðherrann og aðrir sem að málinu koma þurfa að úttala sig um það.
Varðandi þessar áætlanir að öðru leyti tek ég eftir áherslum hv. þingmanns um að þær hafi verið vel ígrundaðar og góður grunnur inn í framtíðina. En öll þessi vinna, þessi umræða sem á sér stað hér, er upphafið að nýjum háttum í þinginu, að taka til ítarlegrar umræðu áætlanir allra ráðuneyta fimm ár fram í tímann. Ég ætla bara að leyfa mér að ljúka máli mínu á því að segja hversu mikil breyting (Forseti hringir.) það er í þinginu í umræðu um ráðstöfun opinberra fjármuna inn í framtíðina að eiga þetta samtal við fagráðuneytin. (Forseti hringir.) Ég hef látið þau orð falla hér áður að við erum að byggja upp getuna til áætlunargerðarinnar og svo erum við að fara í þessi ársskýrsluskil (Forseti hringir.) til þingsins í fyrsta skipti í sumar. Ég held að þetta muni til lengri tíma verða mjög til góðs.