148. löggjafarþing — 48. fundur, 13. apr. 2018.
fjármálaáætlun 2019--2023.
494. mál
Þá er lokið umfjöllun um mál á sviði dómsmálaráðherra og þar með lokið jafnframt umræðum um málefnasvið allra fagráðherra, níu í dag og eitt í gærkvöldi. Hér er langur vinnudagur að renna sitt skeið á enda, hér hefur staðið hólmalaus umræða, fundur í fimmtán klukkustundir. Forseti vill leyfa sér að lýsa ánægju með það hversu vel og málefnalega þær hafa farið fram, þótt það sé annars ekki venjan að gefa umræðum sérstaka einkunn í fundarlok.