Frestun á skriflegum svörum.
Borist hafa tvö bréf frá fjármála- og efnahagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 575, um eftirlit með vátryggingaskilmálum, frá Birni Leví Gunnarssyni, og á þskj. 614, um eignaraðild vogunarsjóða að bankakerfinu og eftirlitshlutverk Fjármálaeftirlitsins, frá Birgi Þórarinssyni.
Borist hefur bréf frá umhverfis- og auðlindaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 499, um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra og ráðuneytisstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni.
Borist hefur bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 494, um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra og ráðuneytisstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni.
Loks hefur borist bréf frá utanríkisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 498, um ferðakostnað og dagpeninga ráðherra og ráðuneytisstjóra, frá Birni Leví Gunnarssyni.
Þá vill forseti sjálfur biðjast velvirðingar á því að dregist hefur að svara tveimur fyrirspurnum, á þskj. 443, um notkun akstursbóka í bifreiðum Alþingis og greiðslur dagpeninga til forseta Alþingis, frá Birni Leví Gunnarssyni, og á þskj. 433, um starfsmenn Alþingis og stofnana þess, frá Þorsteini Sæmundssyni. Svör við báðum fyrirspurnum eru að verða tilbúin.