störf þingsins.
Herra forseti. Mig langar að ræða hér aðeins um skýrslu Ríkisendurskoðunar um hjúkrunarheimili sem kom út í byrjun apríl. Skýrslan er eftirfylgniskýrsla sem sýnir að það hefur fjölgað verulega á biðlistum eftir hjúkrunarrýmum á Íslandi frá árinu 2011, þ.e. úr 168 ef ég man rétt í 360 eins og staðan er núna. Það er því sérstakt fagnaðarefni að í núverandi fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að bætt verði verulega í í þessum málaflokki. Slíkt er afar mikilvægt. Hins vegar er enn mikilvægara að við setjum strax í gang vinnu, þá á ég við okkur sem löggjafarsamkundu, um það hvernig við viljum sjá þessi mál til framtíðar, þ.e. hvernig við viljum sjá þjónustukerfi fyrir eldra fólk til framtíðar.
Ef við höldum áfram á sömu braut, höldum áfram að byggja hjúkrunarrými fyrir sama hlutfall eldra fólks eins og við höfum gert fram að þessu, þurfum við að byggja á milli 7.000 og 8.000 hjúkrunarrými til ársins 2050. Við erum ekki að fara þangað, augljóslega ekki. Þjónustumódelið er algjörlega sprungið ef við ætlum að halda áfram á sömu leið. Ég skora á þingmenn að hugsa þessi mál með mér og fleiri þingmönnum, að við reynum með einhverju móti að hugsa hvernig við getum bætt þau þjónustukerfi sem við erum með núna þannig að þessi endalausa stofnanahyggja sem við höfum verið mjög upptekin af verði ekki það módel sem við sjáum til framtíðar. Þannig getum við einmitt tryggt að eldra fólkið í þessu landi búi við góðan kost, við aðstæður sem það vill búa við og með þá þjónustu sem það þarf.