148. löggjafarþing — 49. fundur,  13. apr. 2018.

störf þingsins.

[11:08]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti telur að það orki tvímælis að hér sé um að ræða að bera af sér sakir í klassískum skilningi þess samkvæmt þingsköpum því að þar er átt við rétt þingmanna til að verja sig sjálfa ef að þeim hefur sérstaklega verið veist. Pólitísk málsvörn fyrir hönd heilla flokka fellur tæplega undir það.