utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir kynninguna á þessari ágætu skýrslu.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra aðeins út í varnarmál, nánar tiltekið upplýsingaöryggi. Það er kannski vegna þess að ég missi af einhverju í skýrslunni eða hef ekki skoðað þetta nógu vel, en ég finn ekkert um upplýsingaöryggishagsmuni Íslands í skýrslunni. Ég geri þá ráð fyrir að það sé vegna þess að það sé innifalið í einhverju öðru, svo sem NORDEFCO eða einhverju slíku sem er ekki sérstaklega tekið fram í skýrslunni.
Ég nefni þetta sérstaklega vegna þess að núna er heimurinn að breytast hraðar en við mörg vitum og hraðar en við mörg myndum kannski vilja. Með því sem breytist með tækninni er hvernig hernaður, skulum við bara segja, virkar. Á þarseinasta kjörtímabili hafði ég aðallega áhyggjur af upplýsingaöryggi en þó út frá hugmyndinni um friðartíma. Jafnvel á friðartímum eru þjóðir að njósna hver um aðra og kortleggja hvernig þær geti, ef illa fer og upp koma miklar deilur, beitt sér gegn upplýsingaöryggishagsmunum annarra ríkja. Ísland er mjög veikburða eitt og sér, hreinlega vegna smæðar þjóðarinnar. Það er algerlega nauðsynlegt að mínu mati að við leggjum höfuðáherslu á alþjóðlega samvinnu, sér í lagi við Norðurlöndin, þegar kemur að upplýsingaöryggi landsins. Ég veit að það er eitthvað í gangi. Ég túlka þetta ekki þannig að það sé ekkert í gangi, ég hef það úr öðrum áttum að það sé eitthvað í gangi.
En mig langar gjarnan að heyra hvort hæstv. ráðherra geti eitthvað róað taugar mínar um þetta efni.