utanríkis- og alþjóðamál.
Virðulegi forseti. Frá því að ég kom hingað inn — ég efast um að það hafi sést í jafn langan tíma, annars man ég ekki eftir því — hef ég gefið út gögn sem byggð eru á staðreyndum um allt það sem er að gerast. Ég ætla áfram að gera það.
Hv. þingmaður, og ekkert mál með það, það er hennar frelsi, er búin að taka nokkrar sveigjur í þessum málum, t.d. í því máli sem hún, og flokkur hennar, hefur barist hvað harðast fyrir. Því var nú bara hent út í hafsauga áður en nokkur talaði við hana hérna fyrir síðustu ríkisstjórnarmyndun, en er komin aftur núna og segist bara vilja ganga í ESB. Það sé miklu betra að taka umræðuna bara þannig, en auðvitað vitum við hvað felst í því að vera í ESB.
En við verðum að koma okkur upp úr þeim skotgröfum að tala bara um þau mál. Heimurinn er að breytast gríðarlega mikið. Við erum með risaverkefni eins og norðurslóðamálin. Við erum með gríðarlega stórt verkefni sem snýr að öryggis- og varnarmálunum. Við erum með gríðarstór verkefni sem snúa að því að koma vörum okkar og þjónustu á markað til þess að geta haldið uppi þeim lífskjörum sem allir flokkar á þingi eru sammála um.
Við verðum að koma okkur út úr því að geta rætt einungis um einn lítinn hlut þegar kemur að utanríkismálum. Í umræðu, talandi um að hafa hana uppbyggilega, hugsa um stöðu Íslands, hvert við viljum fara, hvernig við ætlum að nýta tækifærin, hvernig við ætlum að sjá til þess að við verðum samkeppnishæft þjóðfélag svo að unga fólkið vilji búa hér því að við erum í samkeppni um unga fólkið okkar, verða menn að víkka sjóndeildarhringinn. Menn verða að fara að verða alþjóðasinnaðir. Menn verða að fara að líta á það hvernig heimurinn er og verður á næstunni.
Síðan skulum við gera eitt, ég mun leggja mig allan fram um að koma öllum þeim upplýsingum á framfæri sem eru mikilvægar til að þing og þjóð geti tekið þá umræðu. Hér er ágætisskýrslubeiðni um kosti og galla EES, það verður stórt verkefni sem er mikilvægt að verði unnið mjög vel til að góður grunnur verði í því. (Forseti hringir.) Ég hvet hv. þingmenn til að kynna sér skýrsluna sem ég er með hér, sömuleiðis skýrsluna um (Forseti hringir.) EES. Ef einhverjar rangfærslur eru þar er mjög mikilvægt að koma því á framfæri, en það kæmi verulega á óvart ef svo væri.