148. löggjafarþing — 50. fundur,  16. apr. 2018.

viðvera ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[15:06]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að taka undir með hv. þm. Oddnýju Harðardóttur. Þessi hringlandaháttur er ekki bjóðandi. Þingmenn eru búnir að undirbúa sig til að spyrja ráðherra sem auglýst hefur verið í töluvert langan tíma að muni vera hér til svara. Svo hverfur viðkomandi ráðherra og einhver nýr skýtur upp kollinum. Það er ekki þannig sem við viljum vinna hér.

Mig langar líka að spyrja hæstv. forseta út í hvenær samið hafi verið um að þingfundur ætti að standa lengur í dag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)